Bólusetning hefst í næsta mánuði

Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar um miðjan október.
Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar um miðjan október. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 16. október að því er fram kemur á vef embætti Landlæknis.

Bóluefni sem notað verður í bólusetningum í vetur samkvæmt samningum sóttvarnalæknis við Vistor er Vaxigrip Tetra - 95.000 skammtar samkvæmt samningi við útboð 2019 og viðaukasamningum 2021.

Eins og undanfarin ár verður dreifingu forgangsraðað til heilbrigðisstofnana og hjúkrunarheimila fyrsta mánuðinn. Þess er vænst að bólusetningar forgangshópa geti hafist um allt land eftir miðjan október en aðrir sem fá úthlutað bóluefni fá það eftir miðjan nóvember, þ.m.t. aðilar sem sinna vinnustaðabólusetningum.

Dreifing bóluefnis til aðila sem sinna bólusetningum miðast við það magn sem pantað var eða skráð notað síðastliðinn vetur nema annað hafi komið fram í samskiptum sóttvarnalæknis við ábyrgðaraðila bólusetninga.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn fædd 1.1.2020–30.6.2023, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Bóluefnið er forgangshópum að kostnaðarlausu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert