Framkvæmdir við vetrargarð hafnar

Skíðaleiðum verður fjölgað úr einni í þrjár í Vetrargarðinum.
Skíðaleiðum verður fjölgað úr einni í þrjár í Vetrargarðinum. Ljósmynd/ÍTR

Framkvæmdir vegna vetrargarðs í Breiðholti eru hafnar. Skíðalyftan á staðnum hefur verið tekin niður tímabundið meðan á framkvæmdum stendur.

Svæðið verður mótað upp á nýtt og skíðaleiðum fjölgað úr einni í þrjár. Búist er við að hægt verði að setja aftur upp skíðalyftu sumarið 2025 samhliða annarri uppbyggingu á svæðinu tengdri garðinum, að því er segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. 

Vetrargarðurinn er hluti af hverfisskipulagi fyrir Neðra-Breiðholt, Seljahverfi og Efra-Breiðholt, sem tók formlega gildi vorið 2022.

Framtíðar fjölskyldugarður fyrir vetraríþróttir

Vetrargarðurinn verður framtíðar fjölskyldugarður fyrir vetraríþróttir í Reykjavík auk hjólagarðs á sumrin. Áhersla er áfram á að þjónusta börn og fjölskyldur og að miða starfsemina við byrjendur. Stefnt er að því að tryggja samfellda þjónustu og rekstur allan ársins hring.

Megináhersla garðsins er að stuðla að aukinni hreyfingu og útiveru meðal borgarbúa. Auk aðgengis fyrir almenning er ætlunin að bjóða leik- og grunnskólabörnum á skíði á skólatíma. Skíðafélögin hér á höfuðborgarsvæðinu munu nýta sér garðinn til æfinga fyrir yngstu kynslóðina.

Svæðið afmarkast af fyrirhuguðum Arnarnesvegi í austri, íbúðahverfi við Jakasel í suðri, Breiðholtsbraut í norðri og athafnasvæði við Jafnasel í vestri. Svæðið liggur í um 99 m hæð yfir sjávarmáli þar sem það er lægst, en fer hæst í um 130 m hæð. Sem stendur er verið er að flytja efni á svæðið til að móta það upp á nýtt.

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa í sumar var samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir Vetrargarðinn í Breiðholti, nánar tiltekið fyrir móttöku á jarðvegi og mótun skíðabrekkna og lands innan svæðisins. Gildistími framkvæmdaleyfisins er til 31. janúar 2025.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert