Líta hatursorðræðu alvarlegum augum

mbl.is/Eyþór

Borgarráð Reykjavíkur er stolt af samstarfi við samtökin 78 þegar kemur að hinsegin fræðslu sem og af jafnréttisskólanum og öðru starfsfólki borgarinnar sem kemur að fræðslu um jafnréttismenntun, mannréttindi og kynheilbrigði. 

Þetta kemur fram í þverpólitískri bókun sem borgarráð, ásamt áheyrnarfulltrúum lagði fram á fundi sínum í gær í kjölfar þess að hafa fengið kynningu á fræðslunni, enda mikil umræða átt sér stað undanfarið varðandi hinsegin fræðslu og kynfræðslu í grunnskólum. 

Markmiðin nást með fræðslu 

Í bókuninni segir að fordómar og ofbeldi eigi ekki heima í okkar samfélagi. Meginmarkmið menntastefnu Reykjavíkurborgar er að „öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.“ Markmið þessi nást meðal annars með fræðslu um kynlíf, kynhneigð og sjálfseflingu. 

„Það er ljóst að framboð af efni sem getur haft neikvæð áhrif á börn er mikið og aðgengi að því hefur aukist verulega með tilkomu internetsins. Það er hlutverk góðs skólakerfis að hjálpa börnum að meta sjálf þær upplýsingar sem þeim berast,“ þar af leiðandi þykir borgarráði mikilvægt að börn geti fengið bæði kynfræðslu og upplýsingar um hinsegin málefni á yfirvegaðan hátt í gegnum skólakerfið. 

Börn læra að setja mörk

Þá segir að reynslan sýni að slík fræðsla leiði til þess að börn læri að setja mörk auk þess sem þau hafa stigið fram og sagt frá ofbeldi. 

Í samstarfi við Reykjavíkurborg sjá samtökin 78 um hinsegin fræðslu í skólum borgarinnar, en að gefnu tilefni þykir borgarráði rétt að árétta að samtökin koma ekki að kynfræðslu. 

Námsefnið hefur verði unnið af mikilli fagmennsku og virðinu, segir í bókuninni. Það er vel ígrundað hvernig að fræðslunni er staðið og allt efni sniðið að þeim aldri sem því er ætlað að ná til. 

„Við lítum hatursorðræðu alvarlegum augum og viljum að börn okkar læri umburðarlyndi og sjálfseflingu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert