Skólameistari MA segir sig frá sameiningarvinnu

Karl Frímannsson, skólameistari MA, leggst alfarið gegn vinnu um sameiningu …
Karl Frímannsson, skólameistari MA, leggst alfarið gegn vinnu um sameiningu MA og VMA. Samsett mynd

Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, leggst alfarið gegn vinnu um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkamenntaskólans á Akureyri. Skrifar hann í bréfi til starfsfólks skólans að ljóst sé að áformin séu aðeins til komin vegna hagræðingar og sparnaðar. Hann hefur sagt sig frá sameiningarvinnunni og greint ráðherra frá afstöðu sinni.

Akureyri.net greindi fyrst frá og birti bréfið sem skólameistarinn sendi til starfsfólks.

„Eins og staðan er núna, þegar ráðherra á undanförnum dögum ítrekar í fjölmiðlum að markmið með vinnunni sé að spara og hagræða, sé ég mér ekki fært sem skólameistari MA að halda málinu áfram og leggst alfarið gegn því að hefja nokkra vinnu um aukið samstarf á þessum forsendum,“ skrifar skólameistarinn.

Aukið samstarf góð hugmynd í upphafi

Áform um sameiningu MA og VMA hafa verið umdeild. Fyrrverandi og núverandi nemendur MA, kennarafélög beggja skóla, þingmenn og fjöldi fyrirtækja hafa gagnrýnt sameininguna. 

Í bréfinu rekur Karl söguna af því þegar ráðherra mennta- og barnamála hafi í byrjun árs lagt til að kannað aukið samstarf milli skólanna í þeim tilgangi að efla menntun og bæta skólastarf. Þá lýsti hann sig reiðubúinn til að taka þátt í slíkri vinnu.

Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri.
Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri. Ljósmynd/MA

Það hafi þá verið mat beggja skólameistara að skynsamlegt væri að kanna málið til hlítar í ljósi þeirrar stöðu sem skólarnir væru í og fá úr því skorið hvort aukið samstarf gæti gert þá burðugri til að takast á við „óhjákvæmilegar og krefjandi áskoranir í umhverfi þeirra“.

„Frá upphafi þessa máls hef ég ítrekað talað gegn því að farið verði í þessa vinnu ef markmiðið er að spara og skera niður svo ekki sé talað um að flytja fjármagnið sem hugsanlega sparast inn í ráðuneytið aftur,“ skrifar hann.

Menntaskólinn á Akureyri.
Menntaskólinn á Akureyri. mbl/ Skapti Hallgrímsson

Hefur upplýst ráðherra um afstöðu sína

„Í stöðuskýrslu stýrihóps ráðherra voru sett fram fjárhagsleg rök fyrir sameiningu skólanna sem standast enga skoðun og lagði ég til að umræddur kafli yrði felldur burt. Við því var ekki orðið,“ skrifar Karl.

Hann bendir þá á að hann sjái sér ekki fært, sem skólameistari MA, að halda málinu áfram með tilliti til þess að ráðherra hafi á undanförnum dögum ítrekað í að markmið vinnunnar væri fólgið í sparnaði og hagræðingu. „Hef ég upplýst ráðherra um afstöðu mína.“

„Sem einlægur talsmaður vandaðrar menntunar hefur það veist mér erfitt að sjá málið þróast á þann veg sem raun ber vitni. Ég ítreka við ykkur að innan MA starfar öflugur og framsækinn hópur sem hefur alla burði til að vinna að farsælum breytingum í þágu nemenda og skólans alls,“ skrifar hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert