Eftirliti með blóðmerabændum breytt

Reglugerð um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni mun …
Reglugerð um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni mun gilda um blóðmerahald. mbl.is/Rax

Óheimilt verður frá 1. nóvember að láta fylfullar merar sæta óþarfa álagi en sérreglur um blóðmerahald verða felldar úr gildi og reglugerð frá árinu 2017 um tilraunir á dýrum látin gilda um starfsemina.

Matvælaráðuneytið hefur fallist á að breyta túlkun á regluverki umhverfis blóðmerahald en reglugerð um velferð dýra gilda um starfsemina en hingað til hefur reglugerð frá 1. nóvember. Reglugerð frá árinu 2022 hefur hingað til gilt um starfsemina. 

ESA áminnti Íslands formlega þann 10. maí þar sem það hafi brotið gegn ákvæðum Evróputilskipunar og ákvæðum EES-samningsins með setningu sérreglna um blóðmerahalds. Íslensk stjórnvöld hafa nú fallist á að blóðtaka úr fylfullum merum fyrir framleiðslu á PMSG/eCG hormóni falli innan gildissviðs regluverksins.

Gætt verður að meðalhófi

Reglugerð um blóðtöku úr fylfullum hryssum nr. 900/2022 verður felld úr gildi þann 1. nóvember eins og fyrr greinir. Lögð er áhersla á að gæta meðalhófs og að hagaðilum sé gefið tækifæri til að aðlaga sig að nýrri lagaumgjörð. Eftir 1. nóvember mun reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni gilda um starfsemina, að því er segir frá í tilkynningu á vef matvælaráðuneytisins.

Að fella starfsemi blóðmerahalds undir umrædda reglugerð felur í sér að formkröfur til ákveðinna þátta starfseminnar munu breytast, til dæmis varðandi starfsleyfi sem Matvælastofnun annast samkvæmt reglugerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert