Ákveðið að rýma hús á Seyðisfirði

Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Austurlandi hefur ákveðið, í samráði við Veðurstofu Íslands og ríkislögreglustjóra, að rýma hús á Seyðisfirði vegna úrkomuspár á Austurlandi.

Eins og fram hefur komið, þá hefur óvissustig almannavarna verið virkjað og von er á að viðbúnaðarstigið færist upp á hættustig seinna í dag.

Rýmingin tekur gildi frá klukkan 18 í dag og er í gildi þar til önnur tilkynning verður gefin út.

Áfram er fylgst náið með stöðu mála að því er Almannavarnir greina frá. 

Rýmingarreitirnir sem um ræðir eru: 4 – 5 – 6 – 7a

Húsin sem um ræðir eru: 
Strandarvegur 39 – 35 – 33 -  29 -27 – 23 -21 – 19 til 15 – 13 – 2 – 1 til 11

Hafnargata 57 – 54 -  53a -53 - 52a – 52 – 50 – 51 – 49  – 48b - 48 – 47 – 46b 46 – 44b - 44 – 43 – 42b – 42 – 40 – 38 – 25

Hér má sjá kort af svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert