Kanna möguleika á samstarfi

Sigríður segir að embættið hafi fundað með Kára á síðasta …
Sigríður segir að embættið hafi fundað með Kára á síðasta ári til að kanna möguleikann á samstarfi milli kennslanefndar og Íslenskrar erfðagreiningar. Samsett mynd

„Við erum að skoða þetta. Við erum ekki búin að gleyma samtalinu en viljum vera með mjög fast land undir fótum, lögfræðilega séð, áður en við nýtum upplýsingarnar.

Þetta er auðvitað mögnuð aðstaða að hafa þennan gagnagrunn en hann var settur saman af öðrum ástæðum og við þurfum bara að sjá hvernig þetta fer saman.“

Þetta segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri í samtali við Morgunblaðið í kjölfar þess að Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, gagnrýndi að kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefði ekki sóst eftir því að fá aðstoð fyrirtækisins við að bera kennsl á lífsýni og líkamsparta sem finnast á Íslandi.

Kári sagði það sjálfsagt að nýta aðstöðu fyrirtækisins hér á landi í stað þess að senda sýni á rannsóknarstofu í Svíþjóð.

Mjög vel boðið

Sigríður segir að embættið hafi fundað með Kára á síðasta ári til að kanna möguleikann á samstarfi milli kennslanefndar og Íslenskrar erfðagreiningar.

Kári bauð embættinu samstarf á fundinum en Sigríður segir það mjög vel boðið. Hún tekur þó fram að það þurfi að huga að persónuverndarsjónarmiðum og öðrum reglum áður en hægt er að taka ákvörðun um það hvort hugsanlegt samstarf sé fýsilegt.

Meira í Morgunblaðinu í dag, mánudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert