Þingmenn Norðausturkjördæmis sýna lítinn áhuga á að tryggja eðlilegar samgöngur austan Vaðlaheiðar til Akureyrar en ákveðnir þingmenn tala aðeins fyrir styttingu þjóðvegarins frá Akureyri til Reykjavíkur, að því er fram kemur í ályktun Framsýnar stéttarfélags um samgöngumál.
Segir þar enn fremur að brúin yfir Skjálfandafljót við Ófeigsstaði í Kinn þoli ekki frekari þungaumferð en lokað hefur verið fyrir umferð stærri ökutækja um hana. Hefur þungaflutningum verið beint á einbreiða brú á þjóðvegi 1. við Fosshól.
„[S]em einnig er löngu hætt að svara kröfum tímans. Umferð þar um er þung og myndast ítrekað langar raðir ökutækja beggja vegna brúarinnar með tilheyrandi slysahættu fyrir vegfarendur. Það bætir ekki úr skák að brúin við Ófeigsstaði hefur að mestu verið lokuð undanfarið fyrir almennri umferð, þar sem nú standa yfir á henni bráðabirgðaviðgerðir.“
Í ályktuninni er jafnframt undirstrikað að góðar samgöngur innan héraðs og til næstu markaðssvæða sé lífæð byggðanna austan Vaðlaheiðar.
Krefst stéttarfélagið þess að stjórnvöld, Vegagerðin og fjárveitingarvaldið „hysji upp um sig buxurnar og hefji þegar í stað framkvæmdir við byggingu nýrrar brúar yfir Skjálfandafljót við Ófeigsstaði.“
Þá er þess einnig krafist að framkvæmdum við nýja brú yfir Skjálfandafljót við Fosshól verði flýtt og brúin færð framar á samgönguáætlun.
„Markmið Framsýnar er að vegasamgöngur í Norðausturkjördæmi verði bættar með góðum tengingum við höfuðborgarsvæðið. Framsýn skorar á stjórnvöld og þingmenn kjördæmisins að ganga til liðs við félagið hvað þessa sýn varðar í samgöngumálum, með það að markmiði að efla byggð og atvinnulíf í fjórðungnum.“