Sverrir Einar Eiríksson, annar eigenda skemmtistaðarins B á Bankastræti, segist hafa sent formlega kvörtun til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar þess að hann var handtekinn aðfaranótt laugardags á skemmtistað sínum.
Aðstandendum staðarins fannst vanta að gætt væri hófs í vinnu lögreglu, að því er segir í yfirlýsingu frá Sverri Einari.
Áður hafði þurft að leiðrétta misskilning lögreglumanns um kröfur sem gerðar eru til dyravarða á staðnum, að sögn Sverris.
„Sami lögreglumaður lét færa undirritaðan niður á lögreglustöð þar sem málinu lauk og mér var sleppt,“ segir í yfirlýsingunni.
„Ég hef sent lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu formlega kvörtun vegna framgöngu þessa lögreglumanns.“
Sverrir segir einnig að með aðstoð öryggismyndavélakerfis staðarins megi sjá að ekki hafi of margir verið inni á staðnum, eins og lögregla hafi haldið fram.
Heimildir mbl.is herma að ungmenni hafi verið látin borga við inngang skemmtistaðarins aðfaranótt laugardags.
Yfirlýsingin í heild sinni:
Á aðfararnótt 17. september sl. kom upp ágreiningur um vinnubrögð lögreglu við eftirlit á veitingastað okkar í Bankastræti. Okkur aðstandendum staðarins fannst vanta að gætt væri hófs í vinnu lögreglu, en áður hafði þurft að leiðrétta misskilning lögreglumanns sem eftirlitið leiddi um kröfur þær sem gerðar eru til dyravarða á staðnum. Sami lögreglumaður lét færa undirritaðan niður á lögreglustöð þar sem málinu lauk og mér var sleppt.
Lögreglan heldur því fram að of margir hafi verið inni á staðnum, en talning með aðstoð öryggismyndavélakerfis staðarins sýnir að svo var ekki.
Ég hef sent lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu formlega kvörtun vegna framgöngu þessa lögreglumanns. Okkur er í mun að gott samstarf sé við lögreglu og hörmum að þarna hafi orðið misbrestur á því. Við vinnum að því að koma á samtali við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu um vinnulag við eftirlit sem fullnægi þörfum lögreglu án þess að það sé um of íþyngjandi fyrir gesti og rekstur staðarins.
Sverrir Einar Eiríksson