Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi, á andláti konu sem fannst látin í apríl á þessu ári, er langt á veg komin en þó ekki lokið.
Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn segir embættið enn bíða eftir endanlegri krufningarskýrslu en á meðan sé unnið úr þeim gögnum sem liggja fyrir.
Kona á þrítugsaldri fannst látin í heimahúsi á Selfossi 27. apríl. Bráðabirgðakrufning á konunni benti til þess að um manndráp væri að ræða.
Tveir menn voru handteknir í kjölfar þess að konan fannst og var öðrum þeirra sleppt úr haldi skömmu síðar. Hinn sat í gæsluvarðhaldi fram í ágúst, alls í 18 vikur. Hann er nú laus úr haldi en hefur verið úrskurðaður í farbann.
Þess ber að geta að lög um meðferð sakamála kveða á um að ekki megi úrskurða sakborning til að sæta gæsluvarðhaldi lengur en tólf vikur nema brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess.
Aðspurður segir Sveinn Kristján allan gang vera á því hvað taki langan tíma fyrir endanlega krufningarskýrslu að skila sér. Það fari eftir eðli málsins og hvenær niðurstöður úr rannsóknum erlendis frá skili sér.