Fjármála- og efnahagsráðherra hefur í nokkurn tíma verið að undirbúa í almennri umræðu niðurskurð í samgönguáætlun, segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingunni, sem situr í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Viðhaldsskuld í vegakerfinu veldur henni áhyggjum.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist þeirrar skoðunar að bíða þurfi með framkvæmdir að andvirði 100 milljarða króna a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu, úr samgöngusáttmálanum. Nýtt kostnaðarmat upp á 300 milljarða kr. í stað 160 milljarða kr. geri þetta að verkum.
„Ég myndi gjarnan vilja sjá umrædda samgönguáætlun, það á eftir að mæla fyrir henni á þingi,“ segir Þórunn og bætir við að áætlunin sé á forræði Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra.
Þórunn segir allt benda til þess að nú fari fram innri barátta í ríkisstjórninni um fjármögnun samgönguframkvæmda. „Við eigum eftir að sjá hverjar hinar raunverulegu tillögur verða,“ segir hún.
Viðhaldsskuld í vegakerfinu veldur Þórunni áhyggjum. Hún segir skuldina hreinlega ekki mega hækka, enda margar brýnar og þjóðhagslega hagkvæmar framkvæmdir í pípunum.
„Í ljósi þess að ríkisstjórnin er að setja sig í niðurskurðarstellingar, þá langar mig að benda á að langhagkvæmasta framkvæmd sem hægt er að ráðast í, er uppbygging Borgarlínu fyrir allt höfuðborgarsvæðið og þar með efling almenningssamgangna.“