Ákæra gefin út í skútumálinu

Ákæran var gefin út á skrifstofu héraðssaksóknara í Reykjavík þann …
Ákæran var gefin út á skrifstofu héraðssaksóknara í Reykjavík þann 15. september. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Mennirnir þrír, sem grunaðir eru um að hafa reynt að smygla 157 kg af hassi til landsins með skútu, hafa verið ákærðir fyrir stófellt fíkniefnabrot.

Þetta staðfest­ir Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara. 

Voru á leið til Grænlands

Tveir mannanna eru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Mennirnir, sem voru með 157 kíló af hassi og rúm 40 grömm af marijúana í skútu, voru á leið til Grænlands þar sem þeir eru sagðir hafa ætlað sér að koma efnunum til sölu og dreifingar.

Mennirnir voru þó handteknir um borð í skútunni fyrir utan Reykjanes þann 24. júní. 

Hittust fyrir utan Garðskagavita

Þriðji maðurinn er ákærður fyrir hlutdeild að fíkniefnabroti. Maðurinn tók að sér að fljúga frá Danmörku, þaðan sem skútan var sjósett, til Íslands, þar sem hann hafði fengið fyrirmæli um að kaupa búnað og vistir til verksins, auk annars. 

Hann flaug frá Danmörku þann 22. júní og hitti annan ákærðu í fjörunni við Garðskagavita í Suðurnesjabæ seint að kvöldi 23. júní. 

Þangað hafði annar ákærðu komið á gúmmíbát frá skútunni, þar sem maðurinn færði honum ýmsar vistir. Þar á meðal bensín og utanborðsmótor sem hann hafði útvegað, allt til þess að gera meðákærðu kleift að halda áfram siglingu sinni með fíkniefnin til Grænlands, að því er fram kemur í ákærunni. 

Saksóknari krefst þess að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar, en ákæran var gefin út þann 15. september. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert