64 skjálftar mældust

Skjálftahrinan virðist vera hætt.
Skjálftahrinan virðist vera hætt. Kort/Map.is

Skjálftahrinan sem hófst nærri Geita­felli, norðvest­ur af Þor­láks­höfn, aðfaranótt sunnudags lauk klukkan 15 í dag.

​Þetta staðfestir Einar Hjörleifsson, náttúrvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Stærsti skjálftinn í hrinunni var af stærðinni 3,2, sá næststærsti af stærðinni 3,1 og einn af stærðinni 3. Riðu þeir allir yfir í gærkvöldi.

Alls mældust 64 skjálftar í hrinunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert