„Þetta er alltaf óheppilegt,“ segir Sveinn Agnarsson, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, SKE, við Morgunblaðið spurður hvaða áhrif umræða og gagnrýni sem SKE hefur fengið undanfarið hafi á störf eftirlitsins og traust þess.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst nýlega að þeirri niðurstöðu að SKE hefði ekki farið að lögum við athugun á útgerðarfyrirtækjum.
Sveinn segir niðurstöðu áfrýjunarnefndar ekki hafa verið rædda í stjórn SKE.
Fundur verði haldinn einhvern tímann í næstu viku. Þar verði einnig rædd sú krafa útgerðarfyrirtækja að SKE skili gögnum.
Fjallað er nánar um málið í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag.