Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í eina viku yfir konu sem er í haldi vegna rannsóknar á andláti manns á sextugsaldri í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni um síðustu helgi. Gæsluvarðhaldið á að renna út í dag.
Að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er dánarorsök mannsins enn óljós. Konan var handtekin á vettvangi.
Héraðsdómur Reykjavíkur tekur kröfuna um gæsluvarðhald fyrir í dag. Ef hún verður samþykkt verður konan, sem er um fertugt, í haldi til 4. október.
„Rannsókn miðar vel og er í fullum gangi. Það er verið að taka skýrslur af fólki, afla gagna og fara yfir gögn,” segir Ævar Pálmi, spurður út í rannsóknina.
Tilkynning um málið barst lögreglu á laugardagskvöld og hélt hún þegar á staðinn. Þar hófust endurlífgunartilraunir á manninum, sem var í framhaldinu fluttur á Landspítalann þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Uppfært kl. 15.17:
Konan var í héraðsdómi í dag úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. október á grundvelli rannsóknarhagsmuna, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.