Framkvæmdir við nýjar höfuðstöðvar á áætlun

Nýjar höfuðstöðvar Icelandair í Hafnafirði.
Nýjar höfuðstöðvar Icelandair í Hafnafirði. mbl.is/Árni Sæberg

Framkvæmdir við nýjar höfuðstöðvar flugfélagsins Icelandair í Hafnarfirði eru á áætlun og til stendur að starfsemi fyrirtækisins flytjist í ný húsakynni í lok árs 2024 en fyrsta skóflustungan var tekin í september 2022.

Að sögn upplýsingafulltrúans, Guðna Sigurðssonar, verður byggingin fokheld innan skamms. Verið sé að ljúka uppsteypu og vinna hafin við að klæða útveggi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert