Snorri Másson stofnar nýjan fjölmiðil

Snorri Másson er ritstjóri Ritstjóra.
Snorri Másson er ritstjóri Ritstjóra.

Snorri Másson fjölmiðlamaður hefur sett á laggirnar nýjan fjölmiðil. Heitir fjölmiðill Snorri Másson ritstjóri og fer Snorri þar vikulega yfir fréttir vikunnar í sérstökum fréttaþætti í sjónvarpi á öllum hugsanlegum samfélagsmiðlum, frá hlaðvarpsveitum yfir til YouTube og X.

Slóð fjölmiðilsins er ritstjori.is

Í tilkynningu segir að miðillinn muni meðal annars leggja áherslu á stjórnmál, menningu og málefni líðandi stundar ásamt því sem þar verði veitt töluverð almenn fréttaþjónusta, bæði í ljósvaka á vefnum.

Snorri Másson lauk prófi í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands árið 2020 og en hafði áður hafið störf á Morgunblaðinu. Þaðan fluttist hann yfir á Vísi og Stöð 2, en þar lét Snorri af störfum í vor.

Frá 2019 hefur Snorri einnig haldið úti hlaðvarpinu Skoðanabræðrum ásamt bróður sínum Bergþóri Mássyni og svo verður áfram. Jafnframt hefur Snorri starfað við fundarstjórn, haldið erindi og sinnt veislustjórn.

Í tilkynningu segir Snorri að stundin marki kaflaskil í hans lífi. 

„Þetta er ánægjuleg stund og markar kaflaskil í mínu lífi að geta hafið mína draumafjölmiðlastarfsemi mína gersamlega frjáls maður. Ritstjórahugmyndin byggist á öfund minni á 19. aldar mönnum, að geta kallað sig ritstjóra án þess að hafa endilega fjölda blaðamanna undir sér, og nú endurvek ég það. Ég skilgreini mig nú sem ritstjóra.

Ný tækni býður fólki upp á að hafa beint samband við mig sem blaðamann án milliliða. Á veraldarsviðinu er fjölmiðlun að taka grundvallarbreytingum og þetta fyrirkomulag tel ég henta nýjum tímum. Ég hef síðan væntingar um að þessi starfsemi muni skila sér í bærilegum ávinningi bæði fyrir mig, lesendur, hlustendur, áhorfendur og íslenskt samfélag.

Vikulegi fréttaþátturinn er flaggskip miðilsins og miðar að því að gera sjónvarp fyrir framtíðarlandið Ísland. Íslenskt sjónvarp er á flestum sviðum staðnað og úr sér gengið og nú þarf að breyta leiknum,“ segir Snorri í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert