Mengun hefur greinst í drykkjarvatni á Borgarfirði eystra. Hefur hitaveita Egilsstaða og Fella mælst til þess að íbúar sjóði vatn til neyslu.
Við reglubundið eftirlit með neysluvatni kom í ljós að vatnið er örverumengað. Um er að ræða E. coli/kólígerlar, sem gefur til kynna að vatnið er mengað af saur frá mönnum eða blóðheitum dýrum.
Í tilkynningu frá hitaveitu Egilsstaða og Fella segir:
„Nauðsynlegt er að sjóða vatn til neyslu. Óhætt er að nota vatnið til annarra þarfa s.s. til baða þar sem fjöldi gerlanna var innan þeirra marka, sem miðað er við að megi vera í baðvatni í náttúrunni (baðstaðir í 1. flokki skv. reglugerð nr. 460/2015 um baðvatn á baðstöðum í náttúrunni).
Frekari sýnitaka stendur yfir og munum við senda út upplýsingar þegar niðurstöður úr þeim liggja fyrir.“