Grindavíkurvegi lokað í tíu tíma

Lokunin er vegna lagningar á nýjum stofnlögnum kaldavatnsveitu fyrir Grindavík.
Lokunin er vegna lagningar á nýjum stofnlögnum kaldavatnsveitu fyrir Grindavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Hluta Grindavíkurvegar verður lokað frá á morgun kl. 9 til 19, fimmtudaginn 5. október. Veginum verður lokað á milli Norðurljósavegar og Grindavíkur og hjáleið verður um Norðurljósaveg.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Colas, en þar segir jafnframt að lokunin sé vegna lagningar á nýjum stofnlögnum kaldavatnsveitu fyrir Grindavík. 

Hjáleið verður um Norðurljósaveg. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp og vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið.

Lokunin verður á milli Norðurljósavegar og Grindavíkur.
Lokunin verður á milli Norðurljósavegar og Grindavíkur. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert