Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við nýrri tegund af netsvikum en í henni er reynt að komst inn í heimabanka viðkomandi.
Á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að um svokallaða smishing-árás að ræða.
„Smishing er form vefveiða þar sem glæpamenn senda út svikul skilaboð í formi SMS skilaboða. Þetta hefur verið algegnt form netárása á Íslandi og oftast tekið það form að segja að pakki sé kominn til móttakanda og tengill á síðu þar sem þarf að skrá kortaupplýsingar til að greiða „smá“ gjald en þessar upplýsingar eru síðan notaðar til að ná út háum upphæðum af kortinu. Í fjölda atvika þá er þetta sennilega algengasta form netsvindls á Íslandi. Skilaboðin eru oftast í nafni þekktra fyrirtækja sem svindlararnir misnota.
Nú hefur bæst við ný nálgun. Nú er fólk að fá skilaboð sem líkir eftir bankanum þeirra og þolendur eru beðnir um að fara á tengil og síðan staðfesta skráningu með rafrænum skilríkjum. Þetta er gert til að komast inn á heimabanka viðkomandi og í raun yfirtaka hann. Það er greinilegt að þessir glæpamenn hafa góða þekkingu á virkni heimabanka og hvernig hægt er að millifæra fé og jafnvel stofna ný greiðslukort og virkja þau stafrænt á símum glæpamannanna. Þegar glæpamenn hafa náð stjórn á heimabankanum þá geta þeir gert ansi mikinn usla og stolið umtalsverðum upphæðum og jafnvel stofnað til skulda.