Framkvæmdum við þverun Grindavíkurvegar lokið

Framkvæmdum við þverun Grindavíkurvegar er lokið.
Framkvæmdum við þverun Grindavíkurvegar er lokið. Ljósmynd/Aðsend

Framkvæmdum við þverun Grindavíkurvegar lauk í gærkvöldi og klukkan 8 í morgun var hann opnaður fyrir allri umferð.

Vegmerkingar verða málaðar á veginn um leið og tækifæri gefst vegna veðurs, að því er segir í tilkynningu.

Settar voru gular steinblokkir við opinn skurð í austari vegöxl í morgun sem verða þar áfram í um tvær vikur vegna vinnu við framkvæmdir við vatnsbrunn sem er nálægt vegöxlinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert