Leita að Sigurveigu

Sigurveig Steinunn Helgadóttir fór frá heimili sínu aðfaranótt þriðjudags.
Sigurveig Steinunn Helgadóttir fór frá heimili sínu aðfaranótt þriðjudags.

Lýst er eftir Sigurveigu Steinunni Helgadóttur, 26 ára konu, sem ekki hefur komið heim síðan hún fór frá heimili sínu í Vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt þriðjudags. 

Fjölskyldan hefur tilkynnt hvarf Sigurveigar til lögreglu sem mun að öllum líkindum senda út tilkynningu í dag. Fréttin er unnin með leyfi fjölskyldunnar sem lýsti eftir henni á samfélagsmiðlum síðdegis í gær. 

Sigurveig er 170 sentimetrar á hæð og mjög grannvaxin. Ekki er vitað með vissu um klæðaburð hennar en líkur eru á að hún hafi verið klædd í svarta síða úlpu með hettu er hún fór að heiman.

Þau sem kunna að hafa upplýsingar um ferðir Sigurveigar eru beðin um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert