Alls konar skringilegheit

Margrét Hugrún nýtur þess að búa til ímyndaða heima með …
Margrét Hugrún nýtur þess að búa til ímyndaða heima með gervigreindarforriti, en sýning hennar, Þetta gerðist aldrei, stendur yfir í Háskólabíói. mbl.is/Ásdís

Viltu fílakaramellu?“ spyr Margrét Hugrún blaðamann þar sem við sitjum í anddyri Háskólabíós dag einn í vikunni, en þar stendur yfir listsýning hennar sem er meðal annars forvitnileg fyrir þær sakir að allar myndirnar eru unnar í tölvu með gervigreind. Sýningin verður opin út október.

Fékk algjöra dellu

Yfir kaffibolla og fílakarmellum segir Margrét Hugrún mér frá sýningunni og hvað leiddi hana í þessar áttir.

„Upp úr áramótum fékk ég aðgang að forritinu Midjourney og fékk mikinn áhuga á þessu,“ segir Margrét Hugrún, en hún lærði ljósmyndun í Iðnskólanum fyrir um tveimur áratugum og hafði því góðan grunn í myndvinnslu. Margrét Hugrún byrjaði að prófa sig áfram og hefur nú náð góðum tökum á tækninni. Hún var því meira en til þegar henni bauðst að halda sýningu og hófst handa við að búa til myndverkin.

„Fyrir mér er þetta forrit nýtt verkfæri til sköpunar.“

Þetta er allt í plati

Sýning Margrétar Hugrúnar í Háskólabíói, sem ber nafnið Þetta gerðist aldrei, var búin til í tengslum við kvikmyndahátíðina RIFF. Hún var beðin um að búa til myndir með vísun í kvikmyndir.

„Ég bjó til myndir sem gætu verið senur úr listrænum kvikmyndum sem gætu verið sýndar á RIFF og vildi hafa svipaðan tón í þeim öllum,“ segir Margrét Hugrún, en á sýningunni eru sjö myndir sem eru prentaðar á ljósmyndapappír. Hún notar hugmyndaflugið til að skapa persónur sem eiga sér einhverjar sögur.

Margrét býr til manneskjur og dýr sem eru ekki til …
Margrét býr til manneskjur og dýr sem eru ekki til í raunveruleikanum.

„Ég hef gaman af því að skapa svona heima. Þegar ég var lítil þá rúntuðum við mamma mín heitin um bæinn og ímynduðum okkur hvernig fólk ætti heima á bakvið gardínurnar,“ segir Margrét Hugrún.

„Ég gef þessum persónum nöfn og líf, en þetta er allt í plati, enda skáldskapur,“ segir Margrét Hugrún og segist ætla að halda áfram að vinna í þessu listformi, meðfram öðru, en sjá má verk hennar á Instagram-síðunni allrabest. 

Hér siglir gríski guðinn Hades með sálu í handanheima. Á …
Hér siglir gríski guðinn Hades með sálu í handanheima. Á myndinni er Hades dulbúinn sem ungur Emanúel Tumi, óreglusama ljóðskáldið úr Sandgerði, sem einnig sést á annarri mynd á sýningunni.

Margrét Hugrún leiðir blaðamann um sýninguna og útskýrir hugsunina á bak við myndirnar.

„Ef maður skoðar myndirnar betur gætu þær verið teknar á einhverjum tilteknum stað, en ef þú rýnir enn betur þá sérðu alls konar skringilegheit. Það er alltaf eitthvað pínu skakkt og ég gerði það viljandi,“ segir Margrét Hugrún sem gjarnan notar bæði manneskjur og dýr sem oftar en ekki eru óræðar dýrategundir sem eru blanda af nokkrum dýrum. Sömu aðferð notar hún á manneskjur.

Ítarlegt viðtal er við Margréti Hugrúnu í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert