Deildu um peninga fyrir manndrápið

Maciej Jakub Tali í Héraðsdómi Reykjaness í dag, en hann …
Maciej Jakub Tali í Héraðsdómi Reykjaness í dag, en hann er ákærður fyrir að hafa valdið dauða meðleigjanda síns í Drangahrauni í Hafnarfirði í júní. mbl.is

Maciej Jakub Tali, sem ákærður hefur verið fyrir að hafa stungið stungið meðleigj­anda sinn, Jaroslaw Kaminski, fimm sinn­um með hníf þar af einu sinni þannig að stung­an náði inn í hjarta, segir Jaroslaw hafa reynt að kúga af sér peninga með að nýta sér erfiða stöðu á leigumarkaði. Þá segir Maciej að þeir hafi drukkið mikið kvöldið sem Jaroslaw var stunginn, en að Jaroslaw hafi upphaflega ráðist gegn sér.

Þetta er meðal þess sem hefur komið fram við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vísir greinir frá.

Segir þar að Maciej hafi komið til Íslands í leit að vinnu og upphaflega fengið inn hjá vini sínum í fimm vikur, en svo fundið herbergi hjá Jaroslaw fyrir 110 þúsund mánuði. Hafi staðan á leigumarkaði verið mjög erfið á þessum tíma að sögn Maciej. Hafi Jaroslaw nýtt sér þetta til að fá auka greiðslur, m.a. viljað skaðabætur fyrir skemmda dýnu.

Kvöldið örlagaríka hafi þeir svo drukkið einn lítra af vodka heima áður en haldið var á krá í Hafnarfirði þar sem haldið var áfram að drekka. Þegar heim var komið um morguninn segir Maciej að hann hafi verið ákveðinn við Jaroslaw um að hann ætlaði ekki að greiða umfram umsamda upphæð. Þá hafi Jaroslaw komið að honum með hníf í hendinni og segir Maciej að hann hafi náð hnífnum af honum og svo stungið hann og nokkrum sinnum í viðbót.  

Í ákæru málsins er rakið að nóttina áður hafi Maciej sent skilaboð á félaga sinn sem hann gisti fyrst hjá með þeim skilaboðum að hann ætlaði að drepa Jaroslaw, en þar segir: „þessi vit­leys­ing­ur fyrst drep ég hann svo hengi ég mig“. Sagðist hann fyrir dómi oft hafa sent slík skilaboð en ekkert meint með þeim.

Einnig er haft eftir honum í frétt Vísis að hann myndi taka hvaða refsingu sem hann myndi hljóta, en að hann væri ósammála málatilbúnaði ákæruvaldsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert