Leit að Sigurveigu lokið

Leitinni að Sigurveigu Steinunni Helgadóttur er lokið.
Leitinni að Sigurveigu Steinunni Helgadóttur er lokið.

Leitinni að Sigurveigu Steinunni Helgadóttur er lokið. Hefur hún sett sig í samband við vini sína og sagst vera örugg. Hefur hún þó ekki skilað sér heim. 

Þetta staðfestir bróðir hennar Þorvaldur S. Helgason við mbl.is. 

Leitað var að Sigurveigu í síðustu viku en hún fór frá heimili sínu í Vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt þriðjudags. Hafði ekkert heyrst frá henni síðan þá þegar leit hófst á fimmtudag. 

Um helgina hafði hún samband við vini sína en ekki fjölskyldu og tjáði þeim að hún væri örugg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert