Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ), kveðst ekki hafa fengið viðbrögð frá Pálmari Óla Magnússyni, stjórnarformanni Birtu lífeyrissjóð, í kjölfar áskorunar miðstjórnar RSÍ til Pálmars um að víkja úr stjórninni.
Næsta skref sé að fá Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) til að úrskurða um hæfi Pálmars.
Kemur áskorunin til þar sem Pálmar hefur réttarstöðu sakbornings og í ljósi birtingu ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins um brot Samskipa gegn banni við ólögmætu samráði, að er kom fram í tilkynningu RSÍ fyrr í dag.
Pálmar Óli var framkvæmdastjóri millilandasviðs Samskipa á þeim tíma sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nær til.
– Hefur þú fengið viðbrögð frá Pálmari eða einhverjum úr stjórninni við áskoruninni?
„Nei ekki í dag, því miður. Maður hefði auðvitað viljað fá einhver viðbrögð við þessu og að hagsmunir lífeyrissjóðsins hefðu fengið að ráða för,“ segir Kristján í samtali við mbl.is.
Í tilkynningu RSÍ kom einnig fram að RSÍ telji nauðsynlegt að gera breytingar á aðkomu atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða.
Pálmar segir að ef engin viðbrögð fáist sé næsta skref RSÍ halda áfram umræðu um aðkomu atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða og að fá Fjármálaeftirlitið til að úrskurða um hæfi Pálmars.
„Það sem maður auðvitað bíður líka eftir er að fjármálaeftirlitið úrskurði líka um hæfi hans, sökum þess að fjármálaeftirlitið getur líka gert athugasemdir um hæfi. Ég held að það hljóti að fara koma einhver afstaða þar. Það er næsta skref sem við munum kalla eftir,“ segir Kristján að lokum.