Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir þá óvissu sem skapast hefur í kringum afsögn fjármálaráðherra vera óboðlega í núverandi efnahagsástandi. Telur hún hann ekki axla raunverulega axla ábyrgð með því að „að skipta um stól við ríkisstjórnarborðið“.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tilkynnti í gær að hann segði af sér ráðherraembættinu í kjölfar þess að umboðsmaður Alþingis birti álit um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Niðurstaða umboðsmanns var að Bjarna hefði brostið hæfi við söluna á hlut ríkisins í bankanum.
Næstu skref liggja þó enn ekki skýrt fyrir. Margir hafa nefnt að Bjarni og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra gætu haft stólaskipti, en hún er sögð treg til vegna mikilvægra og viðkvæmra verkefna á alþjóðavettvangi.
„Mér finnst þetta ekki góð staða,“ segir Hanna Katrín í samtali við mbl.is. „Í fyrsta lagi er um að ræða síðustu skrefin í máli sem hefur tekið býsna langan tíma. Og við erum mörg sem höfum bent á lengi að þetta yrði niðurstaðan. Það er ekki gott þegar [álit umboðsmanns Alþingis] liggur fyrir að það skuli enn vera óvissa um næstu skref.“
Hún segir sú óvissa sem skapast hefur vegna afsagnar fjármálaráðherra sé „ekki boðleg núna í þessum erfiðu efnahagsaðstæðum sem við búum núna við“.
Hvað væri það besta í stöðunni?
„Best í stöðunni væri auðvitað að þessi ríkisstjórn færi frá,“ svarar Hanna Katrín og hlær.
En fyrir utan það?
„Ég veit það ekki. Mér finnst erfitt að tala um svona mál. Þetta er aldrei léttúðlegt þegar maður talar um að einhver eigi að taka pokann sinn eða eitthvað slíkt. Við sinnum hér mikilvægu hlutverki, ráðherrarnir auðvitað enn frekar.“
„Ég á erfitt með þessa nýju skilgreiningu sem menn eru að teikna upp – að það sé einhver öxlunarábyrgð í því að skipta um stól við ríkisstjórnarborðið,“ segir hún. „Ég hefði haldi að ef að ráðherra ætlaði bregðast við á þann hátt með því að raunverulega að axla ábyrgð, stígur hann út úr þessari ríkisstjórn. En verður það? Ég hef ekki hugmynd.“
Í kjölfar afsagnar Bjarna hafa spjótin beinst af Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra en umboðsmaður Alþingis er með til skoðunar hvort hún hafi mögulega brotið stjórnsýslulög þegar hún setti í reglugerð bann við veiðum á langreyðum í ágúst.
mbl.is fékk þau skilaboð frá aðstoðarmanni Svandísar í dag að hún ætli ekki að tjá sig um málin að svo stöddu.
„Það er alveg klárt að það er verið að teikna hana upp. Það er svolítið sérstakt hvernig þessum málum er blandað saman. Ég var akkúrat að reyna að átta mig á því í gær hvenær líkur eru á að umboðsmaður skili áliti vegna þess máls og bera það saman við tímann sem hann tók sér í þetta mál,“ segir Hanna og bætir við að þá hljóti niðurstaðan legið fyrir sitthvoru megin við áramót.
„Ef niðurstaðan er lögbrot þá hlýtur umræðan að fara í gang. En mér finnst samt vont ef að hugmyndir og hugleiðingar þarna á milli fari að hafa einhver áhrif á þessar niðurstöður, því þetta eru tvö ólík mál.“