ÓB eldsneytisstöðin á Egilsgötu 5 gæti verið fjarlægð og þess í stað yrði byggt 3-5 hæða hús með verslun, þjónustu og allt að 48 íbúðum.
Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt tillögu í auglýsingu vegna Egilsgötu 5 um breytingu á deiliskipulagi frá 2003 á svokölluðum „Heilsuverndarreit“. Tillagan verður nú send í borgarráð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
„Hér er um að ræða fyrsta reitinn, af fjölmörgum öðrum bensínstöðvarlóðum í Reykjavík, sem byggður verður upp á nýjan hátt. Það er Klasi ehf sem sækir um þessa deiliskipulagsbreytingu en Tendra arkitektúr hannaði tillögurnar og gerði teikningar og skýringarmyndir,“ segir í tilkynningunni.
Snorrabraut er skilgreind sem stofn- og tengibraut í aðalskipulagi og að það eigi að gera hana að samfelldri og blandaðri byggð. Á reitnum verður lögð áhersla á góð birtuskilyrði í íbúðum og á dvalarsvæðum, að er segir í tilkynningunni.
Samkvæmt tilkynningunni samræmist þessi tillaga markmiðum borgarinnar um fækkun eldsneytisstöðva innan þéttbýlis.
„Íbúðum miðsvæðis fjölgar og tillagan styrkir götumynd Snorrabrautar. Hér er um áberandi horn að ræða og verður lagður metnaður í ásýnd og útfærslu,“ segir í tilkynningunni.
Hámarksfjöldi bílastæða bílastæða á lóð er 38 en í tilkynningunni segir að það sem reiturinn er í landhalla við Snorrabraut og Egilsgötu þá gefist góður möguleiki á bílageymslu í kjallara og undir garðinum.