Skipulagsstofnun hefur birt álit á umhverfismatsskýrslu Isavia vegna framkvæmda við stækkun Keflavíkurflugvallar til ársins 2032.
Í niðurstöðukafla álitsins er gagnrýnt að í fyrri framkvæmdum við stækkun flugstöðvarinnar sem nú er lokið hafi framkvæmdirnar ekki alltaf hlotið málsmeðferð skv. lögum um umhverfismat og einnig er gagnrýnt að ráðist hafi verið í framkvæmdir við austurálmuna í fyrra áður en lokið var við umhverfismat vegna stækkunar flugvallarins.
„Árið 2022 hófust framkvæmdir við 22.000 m² stækkun á flugstöðinni til austurs, svokölluð austurálma, sem er framkvæmd sem er hluti af þessu umhverfismati. Að mati Skipulagsstofnunar hafa leyfisveitingar og uppbygging á Keflavíkurflugvelli á undanförnum árum ekki verið í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda eða eldri lög um mat á umhverfisáhrifum. Telur Skipulagsstofnun það ámælisvert af hálfu Isavia að hafa ráðist í uppbyggingu austurálmu áður en lokið var við umhverfismat vegna stækkunar flugvallarins,“ segir um þetta í áliti Skipulagsstofnunar.
Í umfjöllun Skipulagsstofnunar segir að um sé að ræða áform um viðamiklar framkvæmdir við flugstöðina sem m.a. felist í stækkun núverandi bygginga eða að reistar verði nýjar, allt að 180.000 m² að stærð, byggingu tveggja bílastæðahúsa, samtals um 100.000 m² að stærð, framkvæmdum við flugbrautarkerfið, fraktflutningamiðstöð og fleira.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.