Gripið til aðgerða vegna gullhúðunar EES-reglna

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hyggst skipa starfshóp til að meta umfang gullhúðunar EES-gerða og leggja til tillögur að úrbótum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

„Athugasemdir og dæmi um að EES-gerðir séu innleiddar með svokallaðri „gullhúðun“ hafa komið fram að undanförnu en með því er átt við það þegar stjórnvöld herða á reglum EES-gerða eða bæta við heimasmíðuðum ákvæðum í innleiðingarfrumvörp sem ekki leiða af skuldbindingum samkvæmt EES-samningnum,“ segir í tilkynningunni.

„Gullhúðun leggur í senn byrðar á atvinnulífið og getur grafið undan trausti á EES-samningnum til lengri tíma litið. Nauðsynlegt er að gera úttekt á þeim tilvikum þar sem gullhúðun hefur komið upp og greina umfang hennar og til hvaða úrbóta sé hægt að grípa í einstökum tilvikum og bæta verklag. Eðli málsins samkvæmt er mikilvægt að slík úttekt verði unnin með aðkomu atvinnulífsins og óháðra sérfræðinga, enda þótt stjórnsýslan þurfi að styðja við slíka vinnu,“ er haft eftir utanríkisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert