Formenn ríkisstjórnarflokkanna – Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson – tilkynntu í dag að Bjarni, fráfarandi fjármála- og efnahagsráðherra, myndi skipta um embætti við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.
Eftir að álit umboðsmanns Alþingis vegna sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka var birt sagði Bjarni af sér. Þó kvaðst hann ekki vera sammála álitinu.
Morgunblaðið hafði þegar heimildir fyrir því að Þórdís og Bjarni myndu skipta um ráðherrastól.