Maðurinn sem lést af slysförum á Skógaheiði s.l. fimmtudag hét Sigurður Sigurjónsson, bóndi á Ytri Skógum. Sigurður var 76 ára og lætur eftir sig eiginkonu og 5 uppkomin börn. Tildrög slyssins eru enn í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi á Facebook.