Lést á gjörgæsludeild

Einn hinna slösuðu lést á gjörgæsludeild.
Einn hinna slösuðu lést á gjörgæsludeild. mbl.is

Karlmaður sem slasaðist í eldsvoðanum við Funahöfða síðdegis í gær, lést á gjörgæsludeild.

Tilkynning um eldinn barst á fjórða tímanum í gær og hélt fjölmennt lið viðbragðsaðila þegar á staðinn. Þrír voru í kjölfarið fluttir á slysadeild. Eins og áður kom fram lést einn hinna slösuðu en hinir tveir eru ekki taldir í lífshættu. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.

Eldsupptök eru ókunn og stendur rannsókn lögreglu á brunavettvangi yfir.

Ekki er hægt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert