Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður og verjandi sakbornings í hryðjuverkjamálinu svokallaða, kveðst ósammála niðurstöðu Landsréttar um að gera héraðsdómi Reykjavíkur að taka ákæruna til efnismeðferðar, eftir að henni hafði verið vísað frá í tvígang. Hryðjuverkamálið mun því fyrir dóm.
„Ég er efnislega ósammála þessari niðurstöðu. En þeir [Landsréttur] hafa lokaorðið. Sjálfum fannst mér úrskurður héraðsdóms um þetta vera skýr og skorinorður, vel rökstuddur og var ég sammála þeirri niðurstöðu,“ segir Sveinn í samtali við mbl.is.
Sveinn segir þó að líta verði á björtu hliðarnar við þessa niðurstöðu. Nú geti umbjóðandi hans, Sindri Snær Birgisson, hreinsað orðspor sitt. Til lengri tíma litið sé það betra fyrir Sindra.
„Minn umbjóðandi óttast ekki efnismeðferð málsins, enda saklaus. Þannig er eiginlega betra að fá hreina og klára sýknu heldur en að þetta falli á einhverjum tæknilegum atriðum og endi út í skurði, eins og í stefndi,“ segir Sveinn.
Þannig þið eruð klárir í þetta?
„Já 200%,“ segir Sveinn að lokum.
Landsréttur hefur eins og fyrr segir fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá ákæruliðum í hryðjuverkamálinu svokallaða og skipað héraðsdómi að taka ákæruna til efnismeðferðar.
Sindri Snær Birgisson er ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka en Ísidór Nathansson fyrir að eiga hlut í þeirri tilraun með því að hvetja Sindra áfram.
Héraðsdómur hefur vísað frá ákærulið er varðar skipulagningu hryðjuverka í þessu máli tvisvar sinnum. Í byrjun mánaðar kærði héraðssaksóknari úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar í kjölfar þess að Héraðsdómur vísaði ákærunni frá. Nú hefur Landsréttur fellt úrskurð héraðsdóms, um frávísun, úr gildi.