Útibú Arion banka verða lokuð á morgun

Öll útibú Arion banka verða lokuð á morgun.
Öll útibú Arion banka verða lokuð á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Öll útibú Arion banka og afgreiðslur Varðar verða lokuð á morgun vegna kvennaverkfallsins sem hefur verið boðað á morgun.

Í tilkynningu frá Arion banka segir:

„Konur eru um 60% starfsfólks Arion banka og munu margar þeirra leggja niður störf á morgun, þriðjudaginn 24. október. Með því að leggja niður störf taka þær þátt í kvennaverkfallinu og mótmæla vanmati á störfum kvenna ásamt kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi gegn konum og kvárum.

Við styðjum þetta framtak og munum loka öllum útibúum bankans og afgreiðslum Varðar þriðjudaginn 24. október. Þjónustuverið okkar verður opið en fáliðað og þjónustan verður því skert og gildir það sama um netspjall og samskipti í gegnum tölvupóst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert