Áætla að 113.500 laxar hafi sloppið úr sjókvíum

Frá árinu 2010 eru 16 atvik skráð þar sem tilkynnt …
Frá árinu 2010 eru 16 atvik skráð þar sem tilkynnt var um að gat hafi fundist á sjókvíum eða önnur óhöpp þar sem grunur lék á um á að fiskar hafi sloppið. Af þeim eru 14 á Vestfjörðum og tvö á Austfjörðum. Ljósmynd/Colourbox

Frá árinu 2017 er áætlað að alls 113.500 laxar hafi sloppið úr sjókvíum og voru eldiskvíarnar allar á Vestfjörðum. Frá 2017 hefur framleiðsla í laxeldi í sjókvíum verið 209.560 tonn. Að þeim forsendum gefnum má áætla að 0,54 laxar hafi sloppið á hvert framleitt tonn.

Þetta kemur fram í svari matvælaráðherra við fyrirspurn Gísla Rafns Ólafssonar, þingmanns Pírata, um eldislaxa sem sleppa.

Gísli spurði m.a. hversu margir eldislaxar séu taldir hafa sloppið úr sjókvíum allt frá árinu 2010, en hann óskaði eftir að fá svar sundurliðað eftir árum og landshlutum.

Fram kemur í svari ráðherra að fjöldi fiska sem sluppu úr sjókvíum fyrir árið 2017 liggi ekki fyrir, en fyrir þann tíma hafi umfang sjókvíaeldis verið lítið.

Þá spurði Gísli hversu mörg atvik séu skráð þar sem talið er að eldislaxar hafi sloppið úr sjókvíum allt frá árinu 2010. 

16 atvik skráð þar sem tilkynnt var um gat eða önnur óhöpp

Í svari ráðherra segir, að frá árinu 2010 séu 16 atvik skráð þar sem tilkynnt hafi verið um að gat hafi fundist á sjókvíum eða önnur óhöpp þar sem grunur hafi leikið á um á að fiskar hafi sloppið. Af þeim séu 14 á Vestfjörðum og tvö á Austfjörðum. „Taka ber fram að í töflunni eru auk lax þrjú tilvik þar sem um regnbogasilung var að ræða. Ekki er fullvíst að fiskar hafi sloppið í öllum tilfellum.“

Gísli spurði einnig hversu margir eldislaxar hafi  fundist í laxveiðiám allt frá árinu 2010. 

Ráðherra segir í svari sínu, að gert sé ráð fyrir að spurt sé um fullorðna laxa sem skili sér í ár og svörin miðist við það.

Staðfest að eldislaxar hafi veiðst í 25 ám á þessu ári

„Í nóvember 2013 var tilkynnt um að sloppið hefðu 200 laxar úr eldiskví í Patreksfirði. Sumarið 2014 varð vart við meinta eldislaxa í Patreksfirði og veiddust 105 laxar í netaveiðum á laxi sem Fiskistofa stýrði. Auk þeirra fengust upplýsingar frá veiðimönnum um 104 laxa veidda á stöng. Því var staðfest að 209 laxar hefðu veiðst í og við Ósá í botni Patreksfjarðar en þar eru afar takmörkuð skilyrði til uppvaxtar laxaseiða. Alls voru greind 45 hreistursýni af þessum löxum og voru 43 þeirra af laxi af eldisuppruna,“ segir í svarinu. 

Þá kemur fram, að til til Hafrannsóknastofnunar hafi borist sýni af tíu löxum af eldisuppruna til greiningar árið 2018, sex árið 2019, þrjú árin 2020 og 2021 og 28 árið 2022.

„Alls hefur verið staðfest að eldislaxar hafi veiðst í 25 ám 2023. Auk þeirra eru nú sýni af 79 löxum til viðbótar í greiningu. Alls hafa því Hafrannsóknastofnun borist sýni af 166 löxum (miðað við 27. sept. 2023), með einkenni eldisuppruna. Hafrannsóknastofnun eru enn að berast sýni frá meintum eldislöxum frá veiðimönnum, veiðiréttareigendum og vegna veiðiátaks Fiskistofu. Þannig hafa Hafrannsóknastofnun á veiðisumrinu 2023 borist meintir eldislaxar úr 29 veiðiám (veiðisvæðum), allt frá Kálfá að Fnjóská. Ekki er víst að allir eldislaxar sem veiðast berist Hafrannsóknastofnun til greiningar,“ segir í svari ráðherra. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert