Fjöldi fólks mætti á baráttufundi víða um land vegna kvennaverkfallsins í dag. Flestir voru í Reykjavík, en talið er að allt að 100.000 manns hafi mætt til að taka þátt í fundinum við Arnarhól.
Dagskrá var verið skipulögð víða um land, þar á meðal á Akureyri, Neskaupstað, Egilsstöðum, Dalvík, Höfn, Húsavík, Blönduós, Sauðárkrók, Patreksfirði, Hvammstanga, Ísafirði, Raufarhöfn, Stykkishólmi, Suðurnesjum, Vestmannaeyjum, Vík og Drangsnesi.
Frá Húsavík í dag.
Ljósmynd/Aðalsteinn Árni Baldursson
Mikill fjöldi kom saman á Ráðhústorginu á Akureyri vegna kvennaverkfallsins.
mbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir
Frá Akureyri í dag.
mbl.is/Margrét Þóra
Fjöldinn sem mætti á kröfufundinn á Ísafirði í dag.
Ljósmynd/Albert Eiríksson
Frá Ísafirði.
Ljósmynd/Albert Eiríksson
Í Vík var komið saman í Kötlusetri og gengið um bæinn þar sem endað var í Leikskálum í pálínuboði.
Ljósmynd/Aðsend
Frá Vík í dag.
Ljósmynd/Aðsend