Erindið móttekið en Birgir kýs að tjá sig ekki

Út­gjöld Alþing­is til flug­miðakaupa af Icelanda­ir námu á síðasta ári …
Út­gjöld Alþing­is til flug­miðakaupa af Icelanda­ir námu á síðasta ári 20,9 millj­ón­um króna sam­an­borið við rúm­lega 500 þúsund krón­ur til miðakaupa af Play. Samsett mynd/Hörður/Eggert/Hari

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, segir erindi Félags atvinnurekenda, er varðar vildarpunktasöfnun ríkisstarfsmanna vegna ferðalaga á vegum ríkisins, verða tekið til skoðunar.

„Þetta mál heildstætt [verður tekið til skoðunar], meðal annars á grundvelli erindis Félags atvinnurekenda. Það sem við þurfum líka að gera er að rifja upp hvaða athugun áður hefur farið fram varðandi þessi mál því þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða kemur upp hér á vegum þingsins,“ segir Birgir í samtali við mbl.is.

Hann kveðst að öðru leyti ekki vilja tjá sig um málið.

Persónulegur ávinningur megi ekki hafa áhrif

mbl.is greindi frá því á dögunum að viðskipti Alþingis við Icelandair hefðu verið umtalsvert meiri en við flugfélagið Play á síðast ári og það sem af er þessu ári. Námu útgjöld þingsins til flug­miðakaupa af Icelanda­ir á síðasta ári 20,9 millj­ón­um króna sam­an­borið við rúm­lega 500 þúsund krón­ur til miðakaupa af Play.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, sagði í viðtali við mbl.is í kjölfarið að þingmenn hefðu persónulegan hag af því að velja Icelandair. „Í hvert sinn sem þeir bóka flug með Icelanda­ir fá þing­menn punkta hjá flug­fé­lag­inu sem þeir geta notað til einka­nota,“ sagði hann.

Sara Lind Guðbergs­dótt­ir, for­stjóri Rík­is­kaupa, tjáði sig einnig um málið og sagði persónulegan ávinning ekki mega hafa áhrif á kaup ríkisstarfsmanna á flugmiðum. Sagði hún rammasamning við íslensku flugfélögin um flugfargjöld ríkisstarfsmanna vera í endurskoðun.

Vildi ekki tjá sig um erindi FA

Í framhaldi af fréttaflutningi um málið ritaði Félag atvinnurekenda forseta Alþingis og fjármálaráðherra erindi. Er þar gerð krafa um að við nýtt útboð eigi flugfélög að sjá til þess að ferðir sem séu bókaðar innan rammasamningsins veiti ekki vildarpunkta eða önnur sérkjör sem ríkisstarfsmenn geti nýtt í persónulega þágu. 

FA vekur athygli þingforseta og fjármálaráðherra á því að það er ekki aðeins „sjálfsögð krafa“ að þingið og aðrar ríkisstofnanir velji ævinlega hagkvæmasta kostinn þegar valið er flug fyrir starfsmenn. Það að þingmenn og aðrir ríkisstarfsmenn þiggi vildarpunkta fyrir að beina viðskiptum til Icelandair eða annarra flugfélaga með tryggðarkerfi sé einfaldlega bæði ólöglegt og fari gegn siðareglum þingsins, siðareglum starfsmanna stjórnarráðsins og almennum siðareglum ríkisstarfsmanna,“ segir m.a. í tilkynningu á vef FA.

Birgir Ármannsson kveðst eins og áður sagði ekki vilja tjá sig um ummæli FA að öðru leyti en að erindið sé móttekið.

„Við erum að skoða þetta en ég ætla ekki að tjá mig um það að öðru leyti núna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert