Píetasamtökin hefja starfsemi á Ísafirði

Jorgo Vougiouklakis, læknir og fagaðili Píeta, og Arna Lára Jónsdóttir, …
Jorgo Vougiouklakis, læknir og fagaðili Píeta, og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðar, klipptu á gulan borða í tilefni opnunarinnar. Ljósmynd/Píeta

Píetasamtökin opnuðu í dag Píetaskjól á Ísafirði. Um er að ræða aðstöðu í geðræktarmiðstöð Vesturafls á Suðurgötu 9, Ísafirði, þar sem Píetasamtökin hafa nú aðstöðu til að taka viðtöl í hlýlegu viðtalsherbergi. 

Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta og Einar Hrafn Stefánsson markaðs- og kynningarstjóri Píeta voru með kynningu á starfsemi Píeta og veittu Kiwanisklúbbnum Básum og Veigu Grétarsdóttur Suleburst viðurkenningu fyrir flott starf í þágu samtakanna á Vestfjörðum. Þá klipptu Jorgo Vougiouklakis, læknir og fagaðili Píeta, og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðar, á gulan borða í tilefni opnunarinnar.

Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta og Einar Hrafn Stefánsson markaðs- og …
Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta og Einar Hrafn Stefánsson markaðs- og kynningarstjóri veittu Kiwanisklúbbnum Básum viðurkenningu fyrir flott starf í þágu samtakanna á Vestfjörðum. Ljósmynd/Píeta
Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta og Einar Hrafn Stefánsson markaðs- og …
Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta og Einar Hrafn Stefánsson markaðs- og kynningarstjóri veittu Veigu Grétarsdóttur Suleburst viðurkenningu fyrir flott starf í þágu samtakanna á Vestfjörðum. Ljósmynd/Píeta

Eftirspurn aukist gríðarlega

Eftir opnun Píeta árið 2018 hefur eftirspurn eftir þjónustu samtakanna aukist gríðarlega. Opnun Píetaskjólsins á Ísafirði er liður í því að breiða út þjónustu Píeta eins og unnt er, en um er að ræða fjórða athvarfið sem samtökin opna á Íslandi og það fyrsta á Vestfjörðum.

Á opnuninni voru fulltrúar frá Píeta samtökunum, heilbrigðisþjónustunni, forsvarsmenn sveitarfélaga …
Á opnuninni voru fulltrúar frá Píeta samtökunum, heilbrigðisþjónustunni, forsvarsmenn sveitarfélaga og ýmsir aðrir fulltrúar úr stjórnsýslunni og félagasamtökum. Ljósmynd/Píeta

Píeta samtökin veitir hjálp, aðgengilega þjónustu, stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu og brú í úrræði fyrir aðra. Þjónustan er með öllu gjaldfrjáls og stendur til boða öllum þeim sem náð hafa átján ára aldri og viðtölin eru fyrir fólk með sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða og aðstandendur þeirra.

Píeta síminn er opinn allan sólarhringinn og hægt er að bóka viðtöl í síma 552-2218 alla virka daga milli 09:00 - 16:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert