Valur bregst einnig við bókinni

Séra Friðrik og drengurinn og frá minningarathöfn um séra Friðrik …
Séra Friðrik og drengurinn og frá minningarathöfn um séra Friðrik í Grafarvogskirkju árið 2008. Segir í yfirlýsingu Vals að saga félagsins og Séra Friðriks sé samofin á margan hátt í þau 112 ár sem félagið hafi starfað. Þá segir að það sé erfitt að lesa frásögn sem lýsir hegðun sem er andstæð öllu því sem Knattspyrnufélagið Valur standi fyrir og að hugur félagsins sé hjá viðkomandi. Samsett mynd/mbl.is/Sverrir Vilhelmsson/Kristinn Ingvarsson

Knattspyrnufélagið Valur hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu í kjöl­far út­komu nýrr­ar bók­ar um séra Friðrik Friðriks­son­, þar sem Guðmund­ur Magnús­son sagn­fræðing­ur grein­ir frá því að séra Friðrik hafi leitað á ung­an dreng, sem nú er kom­inn hátt á full­orðins­ár.

Hafði sá sam­band við Guðmund, nú maður um átt­rætt, og sagði hon­um hvað á daga hans hefði drifið.

Hlíðarendi sé öruggur staður

Segir í yfirlýsingu Vals að saga félagsins og Séra Friðriks sé samofin á margan hátt í þau 112 ár sem félagið hafi starfað. Þá segir að það sé erfitt að lesa frásögn sem lýsir hegðun sem er andstæð öllu því sem Knattspyrnufélagið Valur standi fyrir og að hugur félagsins sé hjá viðkomandi.

„Knattspyrnufélagið Valur fordæmir allt ofbeldi í hvaða mynd sem er og kappkostar í öllu starfi sínu að Hlíðarendi sé öruggur staður fyrir þá sem þangað koma.“

Yfirlýsing frá Knattspyrnufélaginu Val:

„Saga Knattspyrnufélagsins Vals og Séra Friðriks er samofin á margan hátt í þau 112 ár sem félagið hefur starfað. Í fjölmiðlum í gærkvöldi og í dag hafa komið fram alvarlegar ásakanir á Séra Friðrik.

Það er erfitt að lesa frásögn sem lýsir hegðun sem er andstæð öllu því sem að Knattspyrnufélagið Valur stendur fyrir. Hugur félagsins er hjá viðkomandi.

Knattspyrnufélagið Valur fordæmir allt ofbeldi í hvaða mynd sem er og kappkostar í öllu starfi sínu að Hlíðarendi sé öruggur staður fyrir þá sem þangað koma.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert