Áætlað er að viðgerðum á streng sem slitnaði á Akureyri í morgun verði lokið milli klukkan 14 og 15 í dag, að því er fram kemur í tilkynningu Mílu.
Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag slitnaði strengur við Hörgárbraut á Akureyri og hefur það haft áhrif á netsamband til heimila og fyrirtækja á Glerársvæðinu.