Nokkur misskilningur um niðurstöðuna

Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ.
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að ráða megi af umfjöllun fjölmiðla um niðurstöðu áfrýjunarnefndar varðandi skrásetningargjald í skólanum, að nokkurs misskilnings gæti um niðurstöðuna.

„Jafnvel hefur komið fram að nefndin hafi kveðið á um að enginn grundvöllur væri fyrir innheimtu skrásetningargjalds en slíkt er alls ekki rétt,” segir Jón Atli í yfirlýsingu.

„Í niðurstöðu nefndarinnar kemur einfaldlega fram að útreikningar vissra kostnaðarliða sem felldir hafa verið undir gjaldið séu ekki fullnægjandi.

Eftir að niðurstaðan lá fyrir hófst vinna hér innan Háskólans við að sjá til þess að útreikningar fyrir umrædda kostnaðarliði séu eins og vera ber.”

Jón Atli ætlar að tryggja að háskólaráð og stúdendar verði upplýstir um framvindu málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert