„Svartur blettur á sögu kjarasamningagerðar“

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, vandar Birgi Jónssyni, forstjóra Play, …
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, vandar Birgi Jónssyni, forstjóra Play, ekki kveðjurnar. Samsett mynd

Stjórn Flugfreyjufélags Íslands, FFÍ, furðar sig á ummælum Birgis Jónssonar, forstjóra Play, í umræðuþættinum Silfrinu á RÚV síðastliðið mánudagskvöld. Þá segir Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, að hátterni Play í tengslum við kjarasamningagerð sé „svartur blettur á sögu kjarasamningagerðar á Íslandi.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram tilkynningu á vefsíðu ASÍ, en þar er yfirlýsing stjórnar FFÍ birt auk þess sem vitnað er í Finnbjörn. Þar segir jafnframt að stjórnin „mótmælir þeim rangfærslum” sem voru viðhafðar í þættinum.

Beggja megin borðsins

Þar segir að Birgir hafi sagt að FFÍ væru gult stéttarfélag undir hatti Icelandair og jafnframt staðhæft að Icelandair væri eini viðsemjandi stéttarfélagsins.

„Flugfreyjufélag Íslands er sjötíu ára gamalt stéttarfélag og eina stéttarfélag flugfreyja og -þjóna á Íslandi. Félagið hefur staðið að samningagerð fyrir hönd félagsmanna sinna sem hafa unnið hjá hinum ýmsu flugfélögum og flugrekendum á Íslandi, má þar nefna: Flugleiðir, Loftleiðir, Icelandair, Flugfélag Íslands, Arnarflug, Íslandsflug, Iceland Express, Wow air og Niceair.

Play er eitt fárra flugfélaga sem hefur ekki liðkað fyrir veru sinna flugfreyja og -þjóna innan banda FFÍ heldur farið þá leið að semja sjálft við sína starfsmenn undir formerkjum Íslenska flugstéttafélagsins (ÍFF) og situr þar með beggja vegna borðsins,” segir í yfirlýsingunni.

Bætt er við að Play fylgi ekki þeim leikreglum sem almennt séu viðhafðar á íslenskum vinnumarkaði. Þetta viti Birgir mætavel og furði stjórn FFÍ sig á fullyrðingum hans í Silfrinu.

Samkvæmt heimasíðu FFÍ eru núverandi viðsemjendur félagsins Icelandair og Flugfélag Íslands.

Birgir endurskoði afstöðu sína

„Stjórn FFÍ fagnar því að Birgir hafi í þættinum lýst yfir rétti kvennastétta til mannsæmandi launa og hvetur því Birgi eindregið til að endurskoða sína afstöðu og liðka fyrir innkomu sinna flugfreyja og -þjóna í FFÍ og hefja undirbúning að kjarasamningsviðræðum þar sem hag þeirra er best borgið,” segir einnig í yfirlýsingunni.

Í lok tilkynningarinnar á vefsíðu ASÍ eru ummæli höfð eftir Finnbirni þar sem hann vandar Play ekki kveðjurnar. „Hátterni flugfélagsins Play í tengslum við hina meintu „kjarasamningagerð“ og sniðganga þeirra á eina frjálsa stéttarfélagi flugfreyja á Íslandi er svartur blettur á sögu kjarasamningagerðar á Íslandi. Á meðan Play sér ekki að sér og hafnar því að fylgja leikreglum íslensks vinnumarkaðar mun íslensk verkalýðshreyfing fordæma starfsemi Play sem að í skásta falli er byggð á siðlausum grunni. Það að forstjóri Play hafi ráðist að heilindum FFÍ opinberlega sem ASÍ er stolt af því kalla sitt aðildarfélag, er sérlega siðlaust í ljósi þess hvað gengið hefur á undanfarin ár. Ég skora á Play að ganga til kjarasamningsviðræðna við FFÍ og tryggja það að íslenskir neytendur geti búið við samkeppnismarkað í millilandaflugi án þess að þurfa gefa verulegan afslátt af heilindum sínum og almennum hugmyndum um viðskiptasiðferði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert