Útskorna tréstyttu af allsberum smádreng má finna í einu horni í Friðriksstofu, minningarstofunni um séra Friðrik Friðriksson í húsakynnum KFUM við Holtaveg. Séra Friðrik hélt upp á þessa styttu og nefndi hana Drumb. Jón Gnarr tístir að um sé að ræða „eitt mest krípí shit “ sem hann hefur heyrt um lengi.
Guðmundur Magnússon sagnfræðingur greindi frá styttunni á bloggi sínu Skrifhús í gær. Fyrr í vikunni greindi Guðmundur frá því að séra Friðrik hafi leitað á ungan dreng, sem nú er kominn hátt á fullorðinsár.
Styttuna hafði séra Friðrik í bókaherbergi sínu og svefnstofu í húsi KFUM við Amtmannastig árum saman.
Guðmundur ritar að er Sigurjón Ólafsson myndhöggvari gerði á sínum tíma minnisvarðann um séra Friðrik og drenginn, sem stendur við Lækjargötu, notaði hann tréstyttuna sem fyrirmynd að drengnum. Þáverandi kona Sigurjóns, Tove Ólafsson, er höfundur verksins.
Síðasta blaðaviðtalið við séra Friðrik var birt í Morgunblaðinudaginn fyrir níræðisafmæli hans árið 1958. Þar minnist séra Friðrik á Drumb með eftirfarandi hætti:
„Sko, þarna á ég strák, sagði hann, og benti á myndina. Tove Ólafsson tálgaði hana og gaf mér. Mér þykir ákaflega vænt um hana. Drengurinn heitir Drumbur. Hann er mjög óþekkur og fæst ekki til að fara í nokkra spjör, og er svo auðvitað alltaf hræddur um, að ég muni skella hann á rassinn. Sjáðu, hvar hann heldur hendinni, við öllu búinn!“
að það sé stytta af nöktu barni í svokallaðri Friðriksstofu hjá KFUM og öllum þar hafi fundist það bara hið eðlilegasta mál, þrátt fyrir umtalið um barnagirnd kallsins finnst mér eitt mest krípí shit sem ég hef heyrt lengi pic.twitter.com/m0qHsC0iW8
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) October 27, 2023