Segir ríkisstjórnina vera „ópólitíska“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Óttar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega á landsþingi Miðflokksins sem hófst í dag. Hann sagði að landsmenn hafi þurft að búa með „ópólitískri ríkisstjórn“ sem hefði hvorki áhuga á pólitík né stefnu.

Sigmundur Davíð sagði að nú ríktu erfiðir tímar í íslenskum stjórnmálum og íslensku samfélagi. Hann kallaði eftir því að menn notist við heilbrigða skynsemi og fullveldið, og spurði hvort þau hugtök væru dottin úr tísku. 

Hann sagði að stjórnarflokkarnir hefðu misst fótfestuna og fylgdu of mikið tíðarandanum. Þá sagði Sigmundur Davíð ríkisstjórnina gefa of mikið vald til stofnanna, embættismanna og nefnda, „það er vald sem þeir hafa ekki heimild til að gefa.“

mbl.is/Óttar

Stjórnleysi í útlendingamálunum

Sigmundur Davíð sagði stjórnleysi ríkja í kringum útlendingamálin. Hann sagði Ísland nánast alveg opið fyrir erlenda glæpastarfsemi, og átti þar við smygl á fólki. Hann sagði viðbrögð stjórnvalda nánast engin eða til óþurfta. 

Hann sagði að ef þróunin yrði sú sama og á síðasta ári verði Íslendingar í minnihluta eftir 15 ár. Sigmundur Davíð sagði mikilvægt að ræða þetta, annars verði gerð stór mistök. 

Hann sagði að mikilvægt að verja samheldni þjóðarinnar og grundvallargildi hennar.  

Stjórnleysi í efnahagsmálum

Þá Sigmundur Davíð hann einnig stjórnleysi í efnahagsmálum. Hann sagði útgjöld þessarar ríkisstjórnar slá öll met og enginn geti útskýrt hvað hafi orðið um peninganna. 

Hann sagði að þingflokkur Miðflokksins myndi leggja fram tillögur til að bregðast við ástandinu. 

Sigmundur Davíð nefndi að hann myndi vilja að matvæli væru skattfrjáls í að minnsta kosti tvö ár til að hafa áhrif á verðbólguna. 

mbl.is/Óttar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert