Sigmundur Davíð áfram formaður Miðflokksins

Ein breyting var í stjórn Miðflokksins.
Ein breyting var í stjórn Miðflokksins. Ljósmynd/Snorri Þorvaldsson

Landsþingi Miðflokksins lauk nú fyrir skömmu og var um að ræða eitthvað besta þing sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, man eftir í pólitík.

„Það var svo mikil jákvæðni, bjartsýni og áræðni í mannskapnum,“ segir Sigmundur í samtali við mbl.is.

Sigmundur Davíð var einn í kjöri til formanns flokksins en á fundinum var staðfest með lófataki að hann myndi áfram leiða flokkinn.

Skipta í sóknargírinn

Ein breyting var í stjórn flokksins en Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni. Heiðbrá Ólafsdóttir var kjörin í hennar stað.

„Við munum áfram gegna að einhverju leyti hlutverki varnarmannanna í íslenskri pólitík, að reyna að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin vinni tjón. Um leið erum við að færa okkur yfir í sóknargírinn. Það má segja að þetta þing hafi markað þann viðsnúning. Við munum ekkert vanrækja vörnina en sóknin er að hefjast fyrir alvöru,“ segir Sigmundur.

Frá landsþingi Miðflokksins.
Frá landsþingi Miðflokksins. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert