Fremur rólegt veður verður á landinu í dag. Skýjað verður með köflum og bjartviðri, en stöku skúrir eða slydduél úti við sjávarsíðuna.
Á morgun hvessir nokkuð við suðurströndina að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Hvessir svo enn meira á miðvikudag, mest syðra og skúrir eða dálítil él verða á austanverðu landinu, en annars verður yfirleitt bjart.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Austan 5-13 m/s, en hægari norðanlands. Dálitlar skúrir við suðurströndina, en annars verður bjart að mestu. Hiti verður 0 til 6 stig yfir hádaginn, en allvíða næturfrost.
Á miðvikudag:
Austan og norðaustan 5-13 m/s, en 13-18 við suðausturströndina. Lítilsháttar rigning eða slydda suðaustan til, él norðaustanlands, en að mestu léttskýjað verður fyrir vestan. Hiti verður nærri frostmarki.
Á fimmtudag:
Norðaustan 10-18 m/s, hvassast suðaustan til. Dálitlar skúrir eða él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hiti verður 1 til 6 stig að deginum.