Mikill viðbúnaður er í Hafnarfirði þessa stundina. Samkvæmt upplýsingum mbl.is eru lögreglubílar, sjúkrabílar og dælubíll slökkviliðsins á vettvangi, eða á leiðinni þangað.
Lögreglan og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu gátu staðfest að aðgerðir væru í gangi og að viðbúnaður væri mikill.
Ekki fengust nánari upplýsingar um málið.
Uppfært klukkan 18.06:
Samkvæmt upplýsingum mbl.is er um umferðarslys að ræða.