Vill tafarlaust vopnahlé á Gasa

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ekki sé hefð fyrir því …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ekki sé hefð fyrir því að haft sé samráð við forsætisráðherra við atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur að rétt hefði verið að styðja ályktun Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um mannúðarhlé á Gasaströndinni.

„Við í ríkisstjórninni vorum sammála um að við myndum leggja áherslu á vopnahlé af mannúðarástæðum strax,“ segir Katrín í samtali við Morgunblaðið.

Enginn ágreiningur sé innan ríkisstjórnar um mikilvægi þess að virða alþjóða- og mannúðarlög. Fastanefnd Íslands í New York starfar í umboði utanríkisráðuneytisins og segir Katrín að ekki sé hefð fyrir því að haft sé samráð við forsætisráðherra við atkvæðagreiðslu.

„Við lögðum áherslu á að leitað yrði allra leiða til að stöðva átökin og finna friðsamlegar lausnir, en líka að halda til haga árásinni sem Hamas gerði á Ísrael fyrr í október. Um það snerist breytingartillaga Kanada, sem hlaut meirihluta atkvæða á þinginu,“ segir Katrín en tillagan hefði þurft aukinn meirihluta til þess að ná fram að ganga. Því hefði niðurstaðan verið sú að sitja hjá þegar greidd voru atkvæði um ályktun Jórdaníu, sem tók ekki tillit til árásar Hamas í októberbyrjun.

Nánar er rætt við Katrínu í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert