Fyrsta flugvél breska flugfélagsins easyJet lenti á Akureyrarflugvelli í dag. Þannig hófst nýr kafli í sögu norðlenskrar ferðaþjónustu. Næstu fimm mánuði verður flogið tvisvar í viku á milli London og Akureyrar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.
„Norðlensk ferðaþjónusta í samstarfi við sveitarfélög og ríki hefur unnið ötullega að því á undanförnum áratug að fá reglubundið millilandaflug um Akureyrarflugvöll í gegnum Flugklasann Air 66N sem rekinn er af Markaðsstofu Norðurlands.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á vetrarmánuði í þessu samhengi og því er sérstaklega ánægjulegt að easyJet ríði á vaðið sem fyrsta erlenda flugfélagið sem heldur úti millilandaflugi um Akureyri.
Breskir ferðamenn hafa í gegnum tíðina verið fjölmennasti hópurinn sem kemur til Íslands yfir vetrartímann og því ljóst að koma easyJet mun hafa gríðarleg áhrif,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að ráðherra ferðamála hafi stutt dyggilega við uppbyggingu flugs um Akureyrarflugvöll og stefnir að því að setja enn meiri kraft í verkefnið, meðal annars með stofnun starfshóps sem hefur það að markmiði að tryggja beint flug til framtíðar.
Haft er eftir Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, að það marki þáttaskil í flugsögu Íslands að easyJet hefji beint flug milli London og Akureyrar utan sumartíðar í ferðaþjónustu.
„Flug líkt og þetta eykur tækifæri á að nýta inniviði í ferðaþjónustu betur og lengur á ársgrundvelli og bætir búsetuskilyrði á Norðurlandi, enda er greiður aðgangur að alþjóðaflugi hluti af því að búa í nútímasamfélagi.
Menningar- og viðskiptaráðuneytið mun halda áfram að styðja við uppbyggingu alþjóðaflugs til Akureyrar en á næstu misserum verða stigin skref til að auka enn frekar slagkraftinn í þeirri vinnu enda fjölmörg tækifæri í því fólgin.
Ég óska Norðlendingum til hamingju með þennan áfanga og hlakka til að fylgja honum eftir í góðri samvinnu við heimamenn,“ er haft eftir ráðherra í tilkynningunni.
Haft er eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, að frá stofnun hafi markmið Flugklasans verið að ná inn beinu flugi frá Bretlandi tvisvar í viku allt árið.
„Nú erum við komin með veturinn og mikilvægt að tryggja það flug í sessi enda er aukin umferð í beinu flugi að vetri til forsenda þess að hægt verði að ná niður árstíðarsveiflunni og byggja upp heilsársferðaþjónustu á svæðinu.
Mikil vinna hefur verið unnin með breskum ferðaskrifstofum og norðlenskum ferðaþjónustuaðilum til að þróa eftirspurn eftir vetrarvörum. Nú er markmiðið að flugi easyJet verði haldið áfram og að þetta flug ryðji brautina fyrir fleiri áfangastaði í beinu flugi um Akureyrarflugvöll,“ er haft eftir Arnheiði.
Þá er haft eftir Ali Gayward, svæðisstjóra easyJet í Bretlandi, að ánægja sé innan félagsins með að hefja flug á þessari nýju leið milli London og Akureyrar.
„Þessi einstaka leið skapar fleiri valmöguleika og fjölbreytni fyrir okkar viðskiptavini í vetur frá Bretlandi með upplifunum á borð við heit náttúruböð, jeppaferðir, hvalaskoðun og norðurljósaskoðun.
Við erum því viss um að þessi áfangastaður mun verða vinsæll og við hlökkum til að bjóða farþega velkomna um borð í flugvélarnar okkar á leið til Akureyrar,“ er haft eftir Gayward.